Hreinsarinn 2: Stökkið
Über das eBook
Roland Benito hjá kærudeild lögreglunnar er kallaður á vettvang ásamt kollega sínum til að yfirheyra tvo lögreglumenn í útkalli. Kvörtun hafði borist út af hávaða í heimahúsi, en í sömu andrá og lögregluna ber að garði stekkur maður út um glugga á fimmtu hæð. Ekkert virðist vera grunsamlegt við aðstæður. En forvitni Rolands vaknar þegar hann ræðir við dótturdóttur sína sem reynist vera besta vinkona dóttur fangavarðarins sem dó. Síðar heyrir hann orðróm um að fangi hafi látist í fangelsinu þar sem hann vann og að fangavörðurinn hafi sætt hótunum og eftirliti. Var þetta kannski eitthvað annað en sjálfsmorð? Fréttakonan Anne Larsen á sjónvarpsstöðinni TV2 á Austur-Jótlandi er einnig að fjalla um þessi mannslát. Í rannsókn sinni hnýtur hún um annað mannslát, af lögmanni sem lést í umferðarslysi. Hún kemst að því að öll þessi mannlát tengjast tilteknum fanga, barnamorðingjanum Patrick Asp, sem afplánar lífstíðardóm fyrir morð á barnungri dóttur sinni. Hann situr í sama fangelsi og fangavörðurinn starfaði.Hreinsarinn er glæpasaga í sex þáttum.-
Über den Autor
Inger Gammelgaard Madsen (f. 1960) er danskur rithöfundur. Inger Gammelgaard Madsen er grafískur hönnuður að mennt. Fyrsta glæpasaga hennar, "Dukkebarnet", kom út 2008. Hún hefur skrifað fjölmargar glæpasögur, meðal annars "Drab efter begæring" (2009), "Slangers gift" (2014), "Dommer og bøddel" (2015) og "Blodregn" (2016).
Produkt Details
Verlag: SAGA Egmont
Genre: Sprache - Sonstige
Sprache: ice
Umfang: 22 Seiten
Größe: 249,5 KB
ISBN: 9788726474985
Veröffentlichung: 15. Juli 2020