Móðirin
Über das eBook
Harmþrungin móðir situr yfir sóttarsæng barnsins síns þegar gamlan mann ber að garði. Hún býður honum inn en meðan á heimsókninni stendur rennur henni í brjóst örskots stund. Þegar hún vaknar aftur hefur gamli maðurinn, sem reyndar var dauðinn sjálfur, horfið burt og tekið veika barnið með sér. Yfirkomin af sorg leitar móðirin allra leiða til að elta dauðann uppi og endurheimta barnið sitt. Ýmsar hindarnir verða á leið hennar og hún verður að færa margar fórnir og stórar. Að endingu tekst henni að ná í skottið á dauðanum, en það er ekki fyrir hvern sem er að breyta framgangi örlaganna. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. -
Über den Autor
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. "Móðirin" er einkar sorgleg saga sem gengur lesendum hjarta nær. Boðskapur hennar fylgir fremur lífinu en rómantískri uppskrift, og talar til allra þeirra sem tekið hafa á móti dauðanum, en einnig þeirra sem velt hafa því fyrir sér hvort dauðinn sé ef til vill betri kostur.
Produkt Details
Verlag: SAGA Egmont
Genre: Sprache - Sonstige
Sprache: ice
Umfang: 7 Seiten
Größe: 199,6 KB
ISBN: 9788726237634
Veröffentlichung: 31. Juli 2020