Hundurinn og grátittlingurinn
Über das eBook
Gamall fjárhundur ákveður að strjúka frá húsbónda sínum í von um að finna meira æti annarsstaðar. Hann mætir grátittlingi sem fylgir honum til borgarinnar þar sem þeir örkuðu á milli búða og stálu sér til matar. Sagan endar þó ekki vel fyrir fjárhundinn því honum er ráðinn bani en grátittlingurinn hefnir ófara hans með eftirminnilegum hætti. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Über den Autor
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
Produkt Details
Verlag: SAGA Egmont
Genre: Sprache - Sonstige
Sprache: ice
Umfang: 6 Seiten
Größe: 253,4 KB
ISBN: 9788728036693
Veröffentlichung: 17. Juni 2022